.... og því kominn í fantagott jólaskap og ohhh....nú langar mig í gamla Fantað aftur, það er svo gott. Það er til í NY....akkuru ekki bara flutt inn.
Ég er núna kominn með tvö herbergi...jibbí....frekur þessi. Eitt leikherbergi og eitt svona læra og sofa. Nú bara kaupa gluggatjöld svo nágrannarnir þurfi ekki að horfa á mig hálfberan við að spila gítar heró á nóttunni. Svo sjónvarp, nýja sófa, hraðsuðuketil, kaffidósir fylltar ýmsu kaffi, ísskáp, þeytara, rafmagnshellu og síðan íbúð til að koma þessu fyrir eða bara taka til í næstu geymslu og eignast annað herbergi. Tek þetta í skrefum, herbergið, húsið, götuna...........hér hafa liðnar 33 mínutur meðan tekið var lag í xbox og skroppið í eldhúsið eftir góðgæti.
Ég er voða hrifinn af þessari mynd Across the Universe...langar voða að sjá hana. Diskur voða finn og trailer mjög hrífandi. Kannski bara blinda ást mín á söngleikjum....að undanskyldum RENT sem ég er ekki áðdándi. Eitthvað of við hana. Afhverju á ég ekki Moulin Rouge? (Að sjálfsögðu lesið "maulin rók", með þýsku "au").
Tvö lög svo sofa. Hollidays are coming...Hollidays are coming....Hollidays are coming....